{"product_id":"fidrildin-i-maganum-skolabyrjun","title":"Fiðrildin í maganum - skólabyrjun","description":"\u003cp class=\"cvGsUA block-font-kerning-normal block-font-feature-liga-off block-font-feature-clig-off block-font-feature-calt-off direction-ltr align-center para-style-body\"\u003e\u003cspan class=\"a_GcMg font-feature-liga-off font-feature-clig-off font-feature-calt-off text-decoration-none text-strikethrough-none\"\u003eÞetta hefti inniheldur 39 blaðsíður af fróðleik, æfingum og verkefnum sem geta stutt við kvíða barna er tengist skólabyrjun. Heftið er hugsað fyrir foreldra til þess að styðja við börnin og kenna börnunum verkfæri sem nýtast þeim. Hægt er að prenta út einstaka síður aftur og aftur þegar áskoranir breytast.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"cvGsUA block-font-kerning-normal block-font-feature-liga-off block-font-feature-clig-off block-font-feature-calt-off direction-ltr align-center para-style-body\"\u003e\u003cspan class=\"a_GcMg font-feature-liga-off font-feature-clig-off font-feature-calt-off text-decoration-none text-strikethrough-none\"\u003eKvíði er ekki ein tilfinning sem lítur alltaf eins út. Kvíði er allskonar. Hjá sumum börnum birtist hann sem fiðrildi í maganum kvöldið fyrir skólasetningu. Hjá öðrum sem tár við skólahliðið, þögn í kennslustofunni, eða óútskýrð magaverkur á sunnudagskvöldum. \u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"cvGsUA block-font-kerning-normal block-font-feature-liga-off block-font-feature-clig-off block-font-feature-calt-off direction-ltr align-center para-style-body\"\u003e\u003cspan class=\"a_GcMg font-feature-liga-off font-feature-clig-off font-feature-calt-off text-decoration-none text-strikethrough-none\"\u003eÞað besta við kvíða er að hægt er að vinna með hann. Ekki með einu töfrasvari, heldur með litlum, endurteknum verkfærum sem barnið lærir að grípa til aftur og aftur, þangað til þau verða eðlileg og sjálfvirk.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"cvGsUA block-font-kerning-normal block-font-feature-liga-off block-font-feature-clig-off block-font-feature-calt-off direction-ltr align-center para-style-body\"\u003e\u003cspan class=\"a_GcMg font-feature-liga-off font-feature-clig-off font-feature-calt-off text-decoration-none text-strikethrough-none\"\u003eÍ þessu hefti finnur þú safn af slíkum verkfærum og tólum.\u003c\/span\u003e\u003cspan class=\"a_GcMg font-feature-liga-off font-feature-clig-off font-feature-calt-off text-decoration-none text-strikethrough-none\"\u003e Allt frá því að skilja hvað gerist í heilanum þegar kvíði kviknar, til öndunaræfinga, skynörvunar, hreyfingar, samtalsæfinga og hugsana sem hjálpa til að byggja upp hugrekki. Sumt er hugsað fyrir ykkur foreldra, til að skilja betur hvað barnið er að ganga í gegnum. Annað er hugsað beint fyrir börnin sjálf, til að æfa, teikna, og gera að sínu eigin.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"cvGsUA block-font-kerning-normal block-font-feature-liga-off block-font-feature-clig-off block-font-feature-calt-off direction-ltr align-center para-style-body\"\u003e\u003cspan class=\"a_GcMg font-feature-liga-off font-feature-clig-off font-feature-calt-off text-decoration-none text-strikethrough-none\"\u003eÞað virkar ekki allt fyrir öll börn. Sum börn róast best með öndun, önnur með hreyfingu, önnur með orðum, önnur með snertingu. Þið þekkið barnið ykkar best — leyfið ykkur að prófa ykkur áfram, henda því sem hentar ekki og halda í það sem virkar. Ef þó ekki nema eitt einasta verkfæri úr þessu hefti nýtist barninu ykkar á erfiðum degi, þá hefur það þjónað tilgangi sínum.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"cvGsUA block-font-kerning-normal block-font-feature-liga-off block-font-feature-clig-off block-font-feature-calt-off direction-ltr align-center para-style-body\"\u003e\u003cspan class=\"a_GcMg font-feature-liga-off font-feature-clig-off font-feature-calt-off text-decoration-none text-strikethrough-none\"\u003eSkólabyrjun\u003c\/span\u003e\u003cspan class=\"a_GcMg font-feature-liga-off font-feature-clig-off font-feature-calt-off text-decoration-none text-strikethrough-none\"\u003e og lífið sjálft - er fullt af litlum, óvæntum áskorunum. Vonandi getur þetta hefti orðið einn af mörgum stuðningspunktum á þeirri vegferð.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"cvGsUA block-font-kerning-normal block-font-feature-liga-off block-font-feature-clig-off block-font-feature-calt-off direction-ltr align-center para-style-body\"\u003e\u003cspan class=\"a_GcMg font-feature-liga-off font-feature-clig-off font-feature-calt-off text-decoration-none text-strikethrough-none\"\u003eÞetta hefti kemur ekki í staðinn fyrir vinnu með fagfólki.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"cvGsUA block-font-kerning-normal block-font-feature-liga-off block-font-feature-clig-off block-font-feature-calt-off direction-ltr align-center para-style-body\"\u003e\u003cspan class=\"a_GcMg font-feature-liga-off font-feature-clig-off font-feature-calt-off text-decoration-none text-strikethrough-none\"\u003eVaran er rafræn og berst til ykkar um leið og greiðsla hefur átt sér stað.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"skemmtilegverkefni","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51184866722015,"sku":null,"price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0664\/1336\/3423\/files\/Fidrildinimaganum-skolabyrjun.jpg?v=1786369998","url":"https:\/\/skemmtilegverkefni.is\/products\/fidrildin-i-maganum-skolabyrjun","provider":"skemmtilegverkefni","version":"1.0","type":"link"}