Farðu í vöruupplýsingar
1 af 1

skemmtilegverkefni

Fiðrildin í maganum - skólabyrjun

Fiðrildin í maganum - skólabyrjun

Venjulegt verð 2.900 ISK
Venjulegt verð Söluverð 2.900 ISK
Útsala Uppselt
Skattur innifalinn.

Þetta hefti inniheldur 39 blaðsíður af fróðleik, æfingum og verkefnum sem geta stutt við kvíða barna er tengist skólabyrjun. Heftið er hugsað fyrir foreldra til þess að styðja við börnin og kenna börnunum verkfæri sem nýtast þeim. Hægt er að prenta út einstaka síður aftur og aftur þegar áskoranir breytast.

Kvíði er ekki ein tilfinning sem lítur alltaf eins út. Kvíði er allskonar. Hjá sumum börnum birtist hann sem fiðrildi í maganum kvöldið fyrir skólasetningu. Hjá öðrum sem tár við skólahliðið, þögn í kennslustofunni, eða óútskýrð magaverkur á sunnudagskvöldum. 

Það besta við kvíða er að hægt er að vinna með hann. Ekki með einu töfrasvari, heldur með litlum, endurteknum verkfærum sem barnið lærir að grípa til aftur og aftur, þangað til þau verða eðlileg og sjálfvirk.

Í þessu hefti finnur þú safn af slíkum verkfærum og tólum. Allt frá því að skilja hvað gerist í heilanum þegar kvíði kviknar, til öndunaræfinga, skynörvunar, hreyfingar, samtalsæfinga og hugsana sem hjálpa til að byggja upp hugrekki. Sumt er hugsað fyrir ykkur foreldra, til að skilja betur hvað barnið er að ganga í gegnum. Annað er hugsað beint fyrir börnin sjálf, til að æfa, teikna, og gera að sínu eigin.

Það virkar ekki allt fyrir öll börn. Sum börn róast best með öndun, önnur með hreyfingu, önnur með orðum, önnur með snertingu. Þið þekkið barnið ykkar best — leyfið ykkur að prófa ykkur áfram, henda því sem hentar ekki og halda í það sem virkar. Ef þó ekki nema eitt einasta verkfæri úr þessu hefti nýtist barninu ykkar á erfiðum degi, þá hefur það þjónað tilgangi sínum.

Skólabyrjun og lífið sjálft - er fullt af litlum, óvæntum áskorunum. Vonandi getur þetta hefti orðið einn af mörgum stuðningspunktum á þeirri vegferð.

Þetta hefti kemur ekki í staðinn fyrir vinnu með fagfólki.

Varan er rafræn og berst til ykkar um leið og greiðsla hefur átt sér stað.

Skoða allar upplýsingar